27 Nóvember 2014 12:00

Brot 87 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ sl. föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, við Aðaltún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 658 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101. 

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.