23 Febrúar 2015 16:59

Brot 109 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Korputorg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 692 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.