7 Febrúar 2022 15:32

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Bauhaus. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 654 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og krapi var á meðan hraðamælingunni stóð.