16 Mars 2016 16:12

Brot 144 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 1.071 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Nítján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.