16 Nóvember 2009 12:00

Brot 194 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, gegnt Grafarholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1040 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrjátíu og þrír óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 130.