1 Júní 2016 19:59
Brot 87 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, að Lambhagavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 765 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Níu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115.
Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.