2 September 2016 11:16

Brot 138 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í Ártúnsbrekku í austurátt, að N1. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.520 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sextán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 120.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.