2 September 2016 11:17

Brot 212 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í Ártúnsbrekku í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.585 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.