2 Nóvember 2016 17:39

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Korputorg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 619 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.