22 Mars 2017 14:03

Brot 181 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg við N1 í Ártúnsbrekku í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.580 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.