25 September 2017 13:47

Brot 144 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg við N1 í Ártúnsbrekku í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.735 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sautján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.