9 Mars 2011 12:00

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, að Víkurvegi (brúnni). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 916 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Akstursskilyrði í gær voru slæm en á Vesturlandsvegi var bæði hálka og krapi.