18 Janúar 2018 11:14

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, að Höfðabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.043 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Ellefu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og hálkuþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.