19 Júní 2019 12:39

Brot 133 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, við Höfðabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.411 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrettán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.