27 Júní 2019 09:17

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Korputorg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 872 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 122.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.