21 Október 2019 09:06

Brot 140 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, við Höfðabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.502 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.