20 Ágúst 2009 12:00

Tvö hundruð og nítján voru staðnir að hraðakstri á Vesturlandsvegi í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 219 ökumanna mynduð á Vesturlandsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, á móts við Vínlandsleið í Grafarholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1151 ökutæki þessa akstursleið og því óku 19% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrjátíu og tveir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 132.