9 Desember 2009 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Kollafirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en tíundi hluti ökumanna, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111.