17 September 2014 12:00

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í vesturátt, á móts við barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.