11 Febrúar 2015 17:49

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í vesturátt, á móts við barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 74%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.