18 Ágúst 2015 17:01

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í vesturátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 172 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.