9 Nóvember 2015 13:06

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í vesturátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 274 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.