17 Júní 2009 12:00

Fjörutíu og fjórir voru staðnir að hraðakstri á Vífilsstaðavegi í Garðabæ föstudaginn 12. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 12. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 44 ökumanna mynduð á Vífilsstaðavegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, frá kl. 13.35 til 14.35, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því óku 27% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80.