8 Október 2009 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, að Kirkjulundi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 161 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira. 

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi, en við götuna er Flataskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.