19 Mars 2010 12:00

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Löngulínu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Vífilsstaðavegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Vífilsstaðavegi en þá óku hlutfallslega jafn margir, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan mjög svipuð, eða 24%.