27 September 2010 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Löngulínu. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á þessum hluta Vífilsstaðavegar, en í nágrenninu er Sjálandsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.