24 September 2010 12:00

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á þessum hluta Vífilsstaðavegar er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.