24 September 2010 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, skammt austan við Stekkjarflöt. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 206 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en tíundi hluti ökumanna, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á þessum hluta Vífilsstaðavegar, en í nágrenninu er Flataskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.