4 Apríl 2008 12:00

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Sjálandsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.    

Eftirlit lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Vífilsstaðavegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.