4 Febrúar 2015 10:39

Brot 78 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt, við Hallsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 270 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrettán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Víkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.