25 Febrúar 2022 10:10

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt, við Egilshöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Víkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.