7 Júlí 2022 21:51

Brot 114 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt, að Hallsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 292 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Víkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.