13 Febrúar 2024 09:33

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt, við Gagnveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 323 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Víkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.