28 Október 2009 12:00

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í suðurátt, frá Hallsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 214 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.