14 Nóvember 2007 12:00

Brot 128 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Grafarvogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt að Hallsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 232 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 101. Samkvæmt þessari vöktun er ekki gott ástand á Víkurvegi hvað umferðarhraða varðar.