26 Október 2021 14:50

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 157 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.