28 Febrúar 2011 12:00

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í austurátt, við Guðríðarstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 219 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.