25 Mars 2014 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við lögreglustöðina í Grafarholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.