25 September 2014 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við lögreglustöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81. 

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.