18 Nóvember 2019 09:53

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 200 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrettán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.