13 Febrúar 2020 16:11

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.