25 Nóvember 2009 12:00

Brot 73 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í austurátt, skammt austan við Guðrúnarstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 165 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.