1 Mars 2023 12:16

Brot 56 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í norðurátt, á móts við Álfheima 21. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.