24 Maí 2023 15:36

Brot 38 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í suðurátt, við Ljósheima. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.