10 Janúar 2022 09:45

Brot 70 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í norðurátt, á móts við Álfheima 25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 215 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.