6 Október 2017 16:34

Brot 41 ökumanns var myndað í Álmgerði í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álmgerði í vesturátt, við Hlyngerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar í Álmgerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.