6 Apríl 2018 15:00

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Álmgerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álmgerði í vesturátt, við Hlyngerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Álmgerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.