26 Júní 2018 12:21

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Álmgerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álmgerði í vesturátt, við Hlyngerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Álmgerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.