24 September 2019 10:30

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Álmgerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álmgerði í vesturátt, við Hlyngerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar í Álmgerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.