22 Ágúst 2017 09:03

Brot 30 ökumanna voru mynduð í Álmgerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álmgerði í vesturátt, við Hlyngerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Álmgerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.